|
16.08.2006 18:28:06 / narían
hæ af því að þetta blogg er leiðinlegt þá ákvað ég að búa mér til
nýtt sem ég mun vera svaka duglega að skrifa á þegar ég er komin
út........
http://www.drbeck.bloggar.is
»
22.07.2006 22:25:11 / narían
JÁ SKO KELLU HÚN ER KOMIN INN Í LÆKNASKÓLANN OG Á LEIÐINNI TIL UNGÓ
EFTIR MÁNUÐ!!! VÚHÚ!!!
»
14.07.2006 16:36:33 / narían
hæ er ekki búin að nenna að skrifa neitt af því að þá á víst að
vera sumar núna hélt ég, hef reyndar ekki verið vör við það hér á
landi svona veðurlega allavega ein ég meina maður verður víst að
halda í vonina er það ekki ? annars er maður bara svona þokkalegur
sko ekkert meira bara vinna og svona ha en jæja veit ekki hvenær ég
kíkji á þetta blog hérna næst en já ok bless
»
29.05.2006 19:20:11 / narían
jæja vinir ekki komst hún inn í þetta skiptið
sökum efnafræðivanþekkingar en aftur á móti þá sögðu þessar
dúllur við mig að ef ég tæki mig á og næði að læra efnafræði
núna í sumar og kæmi aftur 22.júlí þá ´væri ég
komin inn! þar sem ég náði líffræðinni en var bara ekki nógu
klár í líffræðinni svo nú er það bara að læra meiri efnó (og
auðvitað meiri líffræði líka) og þá er hún bara komin inn í þennann
blessaða skóla og ég get sko sagt ykkur það að hún ætlar ekki
að beila á þessu tækifæri ó nei, enda er það svaka sniðugt
fyrir svona lúða eins og mig að vita eitthvað áður en
ég fer út....smá raunveruleika kinnhestur var held ég bara
alveg það besta fyrir mig í stöðunni sko.... en jæja úúúú
er að fara á X-men í bíó ég heyri í ykkur seinna!!
luv.....M.
»
26.05.2006 15:16:28 / narían
rassgat.....
»
25.05.2006 16:19:14 / narían
ætli maður geti keypt sjálfstjórn í apótekinu?
»
24.05.2006 15:31:58 / narían
þessi svefnsýki mín fer í taugarnar á mér...horfði á kvikmynd í gær
sem heiti Everything is Illuminated hún er mjög góð mæli með
henni.
Eitt skemmtilegt ég talaði við nokkra af kennurunum mínum úr MK og
bað þau um meðmæli fyrir þennan skóla þarna sem ég er að sækja um
og er búin að fá tvenn, og meðmæli eru mjög fyndið fyrirbæri
þar sem maður er örlítið upphafinn á mjög menntasnobblegan hátt mér
finnst ég allavega alveg svakaklár eftir að hafa skoðað þau. Mæli
með því að þið biðjið gamla kennara um að lofsyngja ykkur það
allavega virkar vel á menntasnobbheilastöðvarnar sem eru
fyndnar...djöfuls bull er þetta sem ég er að skrifa hérna....jæja
ætla snúa mér aftur að náminu...já ok ég er að fara blessó
»
21.05.2006 17:29:46 / narían
sÆlinú allir saman já hún er enn á lífi þótt ótrúlegt sé! og bara
svona líka hress skal ég ykkur segja ha inntökupróf eftir 6 daga og
Sardinía eftir 14! vúbbídúbbí segji ég bara annars er mest lítið að
frétta eins og maður segir mín bara að læra þessa dagana og svo
tekur bara við vinnan á Gráa og allt það. humm æ vildi kanski meira
bara svona sýna smá lit með að skrifa eitthvað hérna á en það kemur
nú kanski meira bráðum..humm jæja en já best að fara að setja nýtt
útlit á þessa síðu...ciao!
»
08.04.2006 18:29:28 / narían
heyjí heyja bitsjes! vá hvað frumsýningin var mögnuð! þá
sjaldan að maður hefur skemmt sér vel þá var það þarna púff hvað
það var gaman....og nú held ég bara áfram að hvetja konur og karla
að koma á sýninguna því hún er svo sniðug!
úff það er samt meira en að segja það að kúpla sig út úr
geðveikinni sem hefur átt sér stað undanfarnar vikur og setjast
aftur í aftursæti raunveruleikans! æji nenni ekki meiru heyrumst
síðar!
»
03.04.2006 10:39:25 / narían
jæja dúllur nú er bara 2 og hálfur dagur í hina mögnuðu frumsýningu
á ANIMANINA
hinu frábæra viskustykki stúdentaleikhússins!!! þið
dúlluvinir mínir sem viljið koma á frumsýninguna á miðvikudag kl.8
látið mig vita í dag og ég tek frá miða!!!
vonast til að þið látið mig sem flest vita ciao mi
amis!
»
28.03.2006 18:31:01 / narían
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
Hvíldu í friði elsku Pétur
»
24.03.2006 11:08:47 / narían
hear ye hear ye! nema hvað helduru ekki bara að nú sé sko nóg að
gera hjá minni ha jii ójú hún er komin á nýjan bíl!!! ójá hinir
ótrúlegu hlutir hafa skeð að hún hefur lagt júgí
prúmpanóvítsj(nissaninum) og er komin á þessa fínu corollu mar!
hvíta megadrossíu sem hún er svo mikil skutla á að það er engu lagi
líkt bara! vúhú ú ú og líka fór hún í klippó til hennar
Tinnu Gunnar og er barasta komin með stutt hár eiginlega eða svona
á hálsinum þið vitið! uss jæja jæja rosa mikið að gera hjá henni
hérna púff úú og já alveg rétt frumsýning á leiknum AMINAMINA með
stúdentaleikhúsinu þann 5.apríl! víjú
ciao
»
08.03.2006 14:57:51 / narían
Þegar ég verð stór ætla ég að bjarga heiminum.
»
07.03.2006 14:51:06 / narían
Ég hef komist að því að mín dýrkun á Prince er mér meðfædd. Þann
frábæra dag sem heimurinn sá mig fyrst þann 16. júlí 1984 var lagið
frábæra " When Doves Cry" með honum Prince kallinum á toppnum! ég
vil þó ekki meina að textinn komi mér nokkuð við en það að Prince
eigi það er nóg ! húrra húrra segi ég
»
22.02.2006 18:19:10 / narían
Góðan dag allir saman og takk fyrir allt. Nei djók smá flipp. Ég
fór í bíó í gær sem væri nú venjulega ekki frásögu færandi nema
hvað hún Adda vinkona sem fór með mér þurfti að fara í miðri mynd
vegna útkalls í túlkun sem enginn annar gat svarað (hún er
táknmálstúlkur) svo ég sat út restina af myndinni ein og var þarna
í fyrsta sinn að prófa það að vera ein í bíó, sem er nú bara alveg
asskoti notalegt þetta var skemmtileg reynsla og ég er ekki frá því
að maður fari bara jafnvel að taka þetta upp. En já fór á
Transamerica sem er nú bara mjög góð og ég verð að segja að ég skil
vel afhverju hún Felicity Huffman fékk Golden Globe fyrir hana því
hún er nú bara mjög trúverðugur transi! veit ekki hvort það er samt
hrós en jú samt.
Annars er hún bara komin með efnið til að læra fyrir inntökuprófið
sem er þann 27.maí svo nú er bara læri læri tækifæri!! vúhú en jæja
ætla að skella mér í sturtu til að kæla brunann sem varð á líkama
mínum sökum ljósatíma sem hún skellti sér í í dag og fara svo á
æfingu með stúdentaleikhúsinu
Good Bile!
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|